tickling itchy feet


PMDD
February 11, 2006, 12:49 am
Filed under: hitt og þetta, Uncategorized

já það er nú hægt að skilgreina allt sem sjúkdóm.  Fyrirtíðarspenna er ekki bara fyrirtíðarspenna.  Hjá sumum konum (u.þ.b 5%) getur það orðið svo slæmt að það hafi áhrif á vinnu, skóla og daglegt líf.

Fyrst ber að segja frá premenstrual syndrome (PMS, fyrirtíðarspenna).
Einni til tveimur vikum fyrir blæðingar fær um 40% kvenna eitt eða fleira af eftirfarandi:

 

  • breast swelling and tenderness

  • fatigue and trouble sleeping

  • upset stomach, bloating, constipation or diarrhea

  • headache

  • appetite changes or food cravings

  • joint or muscle pain

  • tension, irritability, mood swings, or crying spells

  • anxiety or depression

  • trouble concentrating or remembering.

Þeir sem eru góðir í stærðfræði geta reiknað það út að u.þ.b 60% kvenna er alveg laus við þessi einkenni og eru þá í afar góðum málum.
En svo erum við nokkrar, eða um 3-5% sem fáum 5 eða fleiri af þessum einkennum.  Við erum ekki bara með PMS (fyrirtíðarspennu) heldur PMDD, sem er alvarlegri útgáfa af þessari spennu.

Mér þykir þó allavega gott að vita að ég er ekki bara geðveik eða þunglynd heldur þjáist ég af PMDD ásamt 3-5% annarra kynsystra minna.  Það er semsagt ástæða fyrir því að maginn á mér bólgnar, ég get ekki hugsað um neitt annað en mat, eða hvað ég er feit og að ég þurfi að fara í ræktina (mikið meira en vanalega), fæ hausverk, vind- og niðurgang, er þreytt og pirruð, ég get ekki einbeitt mér og gleymi öllu…. o.s.frv.

Þakka ykkur fyrir stelpur, ef þið eruð líka með PMDD þá endilega látið mig vita, svo ég viti að ég sé ekki ein á báti.

Au revoir, ég ætla að fara að sofa og sofa út, svo ég nú kannski hætti að hugsa um mat.
 




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.