tickling itchy feet


Paris et la Riviera
March 10, 2006, 7:56 pm
Filed under: Frakkland

Við stöllur Elísa, Elísa og Kristín ætlum til Frakklands 25.maí. 
Í Frakklandi getum við fundið allt sem við leitum að;

                      eitthvað stórfenglegt..                           eitthvað menningarlegt.. 

            eitthvað bragðgott..

og vonandi svoldið af svona gaurum …. grrr je peux vous rendre visite? OUI Merci!

Au revoir … sjáumst í France

 



Útskriftarferð ?
February 6, 2006, 10:36 am
Filed under: Frakkland

Vika á frönsku Rivierunni og vika í París. Hljómar vel.

Það er erfitt námsmann sem á ekki aur í vasa, og er heldur ekki að útskrifast, að horfa upp á sér yngri vinkonur fara í útskriftarferð til París. Svo virðist sem peningar vaxi í garðinum hjá Elísu Hildi og Kristínu og þær virðast ekki vera að glíma við sama vandamál og ég.  

Ferðinni er heitið 25.maí svo ég hef enn tæpa 4 mánuði til þess að vinna mér inn aur.  Næst á lista er að finna eitthvað í skápunum til þess að selja á eBay.  Eins og komið er hef ég BurgerKing skyrtu sem ætti að hala inn aurunum og gömul undirföt sem ég ætti að geta selt fyrir kanil.  Ef einhver vill leggja mér lið í söfnuninni þá eru flöskur og dósir vel þegnar.  Ég verð þá á ferðinni um allan bæ einn veðurgóðan Laugardag með skottið fullt af ruslapokum.

Draumur minn um að sitja á kaffihúsi í París með sólina í augunum, í stuttu pilsi með rauðvín og alpahúfu skal fá að rætast.  “Une boutelle rouge, merci.” Ég held ég láti þetta gott heita í bili.  Au revoir, mon chum. 




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.